Nám í hársnyrtiiðn skiptist í grunnbraut og framhaldsbraut. Grunnbraut þarf að ljúka áður en innritast er á framhaldsbraut hársnyrtiiðnar.
Grunnbraut er 93 einingar og lýkur á 2. þrepi. Meðalnámstími er þrjár annir.
Markmið brautarinnar er að ljúka almennum áföngum í skólakjarna auk þess að fá góðan grunn í fagáföngum hársnyrtingar, iðnteikningu, iðnfræði og kynnast vinnu á hársnyrtistofu.
Hársnyrtar vinna í mikilli nálægð við viðskiptavini sína og því er mikilvægt að efla samskiptafærni og getu til þess að öðlast skilning á þörfum viðskiptavina af ólíkum toga. Lögð er áhersla á gæðavitund, þjónustulund og siðfræði fagsins í víðum skilningi. Leitast er við að efla sjálfstæð vinnubrögð nemenda og auka getu þeirra til samvinnu við aðra.
Að grunnnámi á 2. þrepi loknu getur nemandinn innritast á framhaldsbraut hársnyrtiiðnar og lokið námi til burtfararprófs í hársnyrtiiðn og/eða námi til stúdentsprófs.
Inntökuskilyrði má sjá hér.
Uppfært 7.10.2024