Heimsókn nemenda í 10.bekk

Nemendur í 10. bekk í grunnskólum Fjarðabyggðar, Djúpavogs og Breiðdalsvíkur heimsóttu VA í gær. Fengu þau kynningu á skólanum hjá námsráðgjafa og áfangastjóra. Einnig kynntu nemendafélagið, leikfélagið og íþróttaakademían starfsemi sína. Krakkarnir fóru svo í heimsókn í kennslustundir í verk- og bóknámi í fylgd með útskriftarnemendum. Að lokum fóru svo allir að sjá Litlu hryllingsbúðina í Egilsbúð. VA þakkar þessum góðu gestum kærlega fyrir komuna.

 

Sjá myndir á http://www.va.is/is/skolatorg/myndasafn/skolaheimsoknir-vor-2014