Nýnemadagur

Nýnemar 2015
Nýnemar 2015

Nýnemadagur VA fór fram í blíðskaparveðri í dag. Nemendaráð VA sá um að skipuleggja daginn og bjóða nýja nemendur velkomna í skólann. Byrjað var á hópeflisleikjum til að hrista hópinn aðeins saman og síðan voru nemendur sendir af stað í ratleik um bæinn. Eftir ratleikinn tóku aðrir nemendur og starfsfólk skólans vel á móti nýnemunum á grasvellinum, þar var farið í boðhlaupskeppnir og haldið fótbóltamót á milli árganga og kennara. Þá voru einnig hoppukastali og súmóglímubúningar á staðnum sem vöktu mikla lukku. Mikil ánægja er með daginn meðal þeirra fjölmörgu nemenda sem tóku þátt og einnig meðal starfsfólks skólans.