Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina (GNB) – 32 einingar
Meginmarkmið grunnnáms bygginga- og mannvirkjagreina er að veita nemendum sýn á atvinnugreinina og störf innan hennar. Lögð er áhersla á kennslu undirstöðuatriða í efnisfræði, áhalda- og tækjafræði, teikningum, verktækni og vinnuvernd. Í lok grunnnámsins eiga nemendur að vera hæfari til að velja sér sérsvið innan bygginga- og mannvirkjaiðnaðar og hafa fengið faglegan grunn til að byggja áframhaldandi nám á. Námið er ein önn en síðan tekur við sérhæfing í þeirri byggingagrein sem nemendur velja.
Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Námsárangur í kjarnagreinum mun einnig hafa áhrif á inn á hvaða þrep nemandinn innritast. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.
Nám á brautinni er ein önn, alls 32 einingar. Til að standast námsmat í áfanga þarf lágmarkseinkunnina 5.
Námsgrein
|
|
|
|
F-EIN
|
Grunnteikning |
GRUN |
1FF04 |
|
4 |
Trésmíði |
TRÉS |
1SL06 |
1AB01 |
7 |
Efnisfræði |
EFRÆ |
1BV05 |
|
5 |
Framkvæmd og vinnuvernd |
FRVV |
1SR03 |
|
3 |
Stærðfræði |
STÆR |
2BR05 |
|
5 |
Íslenska |
ÍSLE |
2SG05 |
|
5 |
Lífsleikni |
LÍFS |
1HN02 |
|
2 |
Hreyfing |
HREY |
1AI01(A) |
|
1 |
|
|
Alls f-einingar
|
32
|