Iðnmeistaranám

Stefnt er á að nýr hópur fari af stað haust 2025

Lýsing: Iðnmeistaranám er öflugt nám í stjórn­unar- og rekstr­ar­greinum sem miðar að því að gera nemendur hæfa til að reka fyrirtæki skv. 10. grein iðnaðarlaga nr. 42/1978 og vera færa um að sjá um leiðsögn og kennslu iðnnema í eigin iðngrein. Hver maður getur leyst til sín meistarabréf ef hann fullnægir skilyrðum 3. gr. laganna, hefur lokið sveinsprófi, unnið síðan undir stjórn meistara í iðngrein sinni eitt ár minnst og jafnframt lokið meistaraprófi í iðninni frá meistaraskóla. Meistarabréf veitir meistara leyfi til að reka þá iðngrein sem meistarabréf hans tekur til.

Námsframvinda: Námið er 38 einingar en þess utan þurfa sumar iðngreinar að taka fleiri einingar, sjá neðst. Námið hefur námslok á fjórða hæfniþrepi íslensks hæfniramma um menntun.

Námsfyrirkomulag: Námið er kennt í dreifnámi í samstarfi við Menntaskólann á Ísafirði. Námið er skipulagt sem fjarnám með skyldumætingu í kennslustundir á Teams en skipulagt þannig að möguleiki er að taka það með vinnu. Innritunargjöld í iðnmeistaranámi eru 6000 kr. innritunargjald, 5000 kr. þjónustugjald og einingagjald er 5.500 kr á hverja einingu.

Inntökuskilyrði: Til að hefja iðnmeistaranám þurfa nem­endur að hafa lokið sveins­prófi í lög­giltum iðngreinum.

Brautarlýsing á www.namskra.is

Almennar greinar

Bókhald og skjalavarsla
5 ein.
1. önn
Fjármál
4 ein.
1. önn
Sölufræði
3 ein.
1. önn
Kennsla og leiðsögn
6 ein.
2. önn
Gæðastjórnun
2 ein.
2. önn
Rekstrarfræði
5 ein.
2. önn
Stofnun fyrirtækja og upphaf rekstrar
5 ein.
3. önn
Stjórnun
6 ein.
3. önn
Öryggi og umhverfi
2 ein.
 
3. önn

Fagtengd efni fyrir húsasmiði, pípara, blikksmiði og múrsmiði

  • Efnisfræði og burðarþol MEFB4MS03BA 3 ein
  • Mælitækni og mælitæki MMÆL4MS03BA 3 ein
  • Sértæk lög og reglugerðir MLÖG4MS02BA 2 ein

Fagtengd efni fyrir vélvirkja, stálsmiði og rennismiði

  • Val í faggrein 8 ein

Fagtengd efni fyrir rafvirkja og rafeindavirkja

  • Kennt hjá Rafmennt, nánari upplýsingar hjá þeim 30 ein