Fyrrum nemandi VA, Tinna Heimisdóttir, komst á forsetalista HR

Fyrrum nemandi VA, Tinna Heimisdóttir, komst á forsetalista í viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, fyrir vorönn 2016.

Nemendur sem ná bestum námsárangri á hverri önn eiga kost á því að komast á forsetalista en í því felst að skólagjöld næstu annar eru niðurfelld.

Við í VA erum afar stolt af Tinnu og óskum henni til hamingju með þennan frábæra árangur.

Hér má fá nánari upplýsingar um viðurkenninguna á heimasíðu HR.