Hvað er #kvennastarf?
Samtök iðnaðarins hafa, í samstarfi við alla iðn- og verkmenntaskóla á landinu og þar á meðal VA, hrundið af stað herferð sem ber nafnið #kvennastarf.
Algengt er að talað sé um „hefðbundin kvennastörf“ Með #kvennastarf er ætlunin að brjóta niður úreltar hugmyndir og benda ungu kynslóðinni á að fyrir bæði kynin eru allar leiðir færar í námi og starfi.
Tilgangurinn er m.a. að vekja athygli á fjölbreyttum störfum í iðn-, tækni- og verkgreinum og benda á þann kynjamun sem hefur viðgengist í sumum starfsstéttum. Í nútímasamfélaginu á Íslandi telja margir að jafnrétti kynjanna ríki á flestum sviðum. En er raunin sú?
Myndir – myndbönd – heimasíða
Herferðin hófst á birtingu ljósmynda, sem prýða nú mörg strætisvagnaskýli á höfuðborgarsvæðinu. Myndirnar sýna stelpur sem eru nemendur í viðkomandi iðngrein og er ætlað að varpa ljósi á fyrirmyndir sem stunda nám eða vinna við þessi störf.
Gefin verða út myndbönd um nám og störf kvenna í nokkrum faggreinum. Myndböndin segja sögu kvenkyns frumkvöðla í karllægum iðngreinum og sögur kvenna sem eru nemendur í dag eða vinna við greinina.
Vefurinn kvennastarf.is er kominn í loftið og þar má finna gagnlegar upplýsingar um málefnið og skemmtilega nálgun í gegnum samfélagsmiðla. Á vefsíðunni er t.d. að finna ótrúlegar tölfræðiupplýsingar sem sýna óútskýranlegan kynjahalla í nokkrum starfsgreinum.
Allir, bæði fólk í verk- og iðngreinum og í öðrum starfsstéttum, eru hvattir til að taka þátt og virkja hashtaggið #kvennastarf með því að setja myndir úr námi og starfi eða öðru sem tengist málefninu, inn á samfélagsmiðla á borð við Twitter, Instagram og Facebook. Ekkert starf er ekki kvennastarf. Konur geta starfað við það sem þeim sýnist og það sama gildir um karlmenn.
Tilgangur og markmið
Átakinu #kvennastarf er ætlað að vera stelpum og ungu fólki hvatning til að skoða alla möguleika í vali á námi og framtíðarstarfi og horfa opnum augum á hvar áhugasvið þeirra liggur. Allir eiga að geta starfað við það sem þá langar til.
Iðn- og verkmenntaskólar stefna á fjölgun fagmenntaðs fólks og markmið þeirra er að 20% grunnskólanema velji iðn-, tækni- og verkmenntun árið 2025 og að lágmarki 30% árið 2030.
Með #kvennastarf er ætlunin að sýna fram á að kynjahallinn sem er í iðn- og verkgreinum er óþarfur. Ef ungt fólk af báðum kynjum sér tækifæri í starfsmenntun, verður auðveldara að fjölga nemendum í þessum greinum og fleira fagmenntað fólk verður til í íslensku atvinnulífi.