Brautskráning 25. maí

Brautskráning frá VA vorið 2022 verður í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði miðvikudaginn 25. maí kl. 16:00.

Nú getum við tekið á móti gestum eftir samkomutakmarkanir síðustu ára en brautskráningunni verður þó einnig streymt á YouTube rás skólans.

Við hvetjum þau sem verða ekki viðstödd athöfnina að fylgjast með brautskráningunni heima í stofu.