Bréf skólameistara vegna verkfallsboðunar

Ágætu nemendur og forráðarmenn.

 

Meirihluti félagsmanna Kennarasambands Íslands í ríkisreknum framhaldsskólum hefur samþykkt verkfallsboðun. Til stendur að verkfall hefjist 17. mars, hafi samningar ekki náðst.
Í næstu viku verða  nemendur og forráðarmenn þeirra upplýstir um hvernig starfsemi skólans verði háttað komi til verkfalls.

 

 

Fjarðabyggð 28. febrúar 2014

                                  

Elvar Jónsson

skólameistari