Bréf til nemenda og foreldra/forsjáraðila vegna vitundarvakningar gegn ofbeldi

Kæru foreldrar/forsjáraðilar

Áhyggjur af auknum vopnaburði og ofbeldi meðal barna og ungmenna hafa farið vaxandi og hafa alvarleg atvik undanfarið ýtt undir þann ótta. Við þessu er mikilvægt að bregðast.

Verkmenntaskóli Austurlands áréttar að vopnaburður á almannafæri er lögum samkvæmt bannaður. Ef nemandi verður uppvís að því að bera vopn verður málið undantekningalaust tilkynnt til lögreglu, og eftir atvikum til barnaverndarþjónustu ef um barn er að ræða, og haft verður samband við foreldra/forsjáraðila. Ofbeldismál sem upp koma innan skólans eða viðburðum í hans nafni verða sett í viðeigandi ferli og unnin eftir viðbragðsáætlun þar um sem finna má hér á heimasíðu skólans, ásamt skólareglum, sem við hvetjum foreldra/forsjáraðila og nemendur til að kynna sér.

Ákveðnir þættir eru verndandi gegn áhættuhegðun barna svo sem samvera foreldra/forsjáraðila og barna, að útivistartími sé virtur, fylgst sé með netnotkun þeirra, að börnum sé sýnd umhyggja og þeim séu sett skýr mörk og að foreldrar/forsjáraðilar þekki vini barna sinna og foreldra/forsjáraðila þeirra. Jafnframt felst mikið forvarnargildi í þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og mikilvægt er að foreldrar/forsjáraðilar séu virkir þátttakendur í foreldrastarfi.

Mikilvægt er að foreldrar/forsjáraðilar taki þátt í að bregðast við þessari þróun og geri allt sem í sínu valdi stendur til að koma í veg fyrir ofbeldi og vopnaburð. VA hvetur foreldra/forsjáraðila til að ræða við börnin sín um hvernig við sköpum í sameiningu öruggara samfélag, þ. á m. um að það sé ólöglegt að ganga um með vopn, hverjar afleiðingar ofbeldis geta verið og kynna fyrir þeim hvert þau geta leitað að stuðningi.

Þá er vakin athygli á því að nemendur og foreldrar/forsjáraðilar geta leitað stuðnings og ráðgjafar innan skólans svo sem hjá umsjónarkennara, stjórnendum, skólahjúkrunarfræðingi eða náms- og starfsráðgjafa. Þá bendum við á Hjálparsíma Rauða Krossins 1717 og netspjall á www.1717.is og á www.112.is.

Þá bendum við á að á öllum hvílir tilkynningarskylda til barnaverndar ef ástæða er til að ætla að barn verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu.

Í sameiningu getum við stuðlað að öruggara samfélagi og aukinni farsæld. Við hvetjum ykkur til að hafa samband við skólann ef einhverjar spurningar vakna.

Virðingarfyllst,

Eydís Ásbjörnsdóttir

skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands