8. nóvember ár hvert
Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti hefur ákveðið að helga 8. nóvember ár hvert baráttunni gegn einelti. Slíkur
baráttudagur var fyrst haldinn árið 2011 og markmiðið með deginum er og var að vekja sérstaka athygli á málefninu. Undirritun
fulltrúa félaga, samtaka og opinberra stofnana á þjóðarsáttmála gegn einelti var þar einn liður. Sáttmálinn er einnig
grunnur að frekari vinnu, við hann má bæta og miða í þeim efnum við þarfir þeirra fjölmörgu félaga, samtaka og stofnanna er
undirrituð sáttmálann í Höfða í fyrra. Sáttmálan má því útfæra enn frekar með undirmarkmiðum og
fjölbreyttum verkefnum.
Mörg verkefni sem tengjast baráttudeginum eiga sér langan aðdraganda, eru ólík en eiga það öll sammerkt að vera liður í
að efla jákvæð samskipti í samfélaginu. Markmiðið með baráttudeginum er því ekki það að efna til
sérstakrar flugeldasýningar á þessum tiltekna degi, dagurinn er fremur tilefni til þess að gefa gaum og benda á margt það sem vel er gert
í þessum efnum. Baráttudagurinn er því ekki síður dagur til þessa að líta yfir farin veg, þétta raðirnar,
ákveða næstu skerf og bretta upp ermarnar hver í sínum mikilvæga ranni.
Verkefnastjórnin hvetur alla þá fjölmörgu aðila og samtök, sem starfa á þeim vettvangi sem átakið nær til, til þess
að taka höndum saman og helga 8. nóvember ár hvert baráttunni gegn einelti. Sérstaklega er þessu beint til leikskóla, grunn- og
framhaldsskóla, félags- og frístundamiðstöðva, auk vinnustaða og stofnana. Ýmislegt er að hægt að gera á þessum
baráttudegi, s.s. með táknrænum viðburðum eða viðfangsefnum sem hafa það að markmiði að beina umræðunni að einelti og
alvarlegum afleiðingum þess í samfélaginu og ekki síst mikilvægi jákvæðra og uppbyggilegra samskipta.
sjá nánar á www.gegneinelti.is