Dregið verður í fyrstu umferð Gettu betur þriðjudaginn 17.des..

Gettu betur lið VA árið 2006
Gettu betur lið VA árið 2006

Umsóknartími vegna þátttöku í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur 2014 er nú liðinn. Alls tilkynntu 30 skólar að þeir myndu senda lið til keppninnar á þessum vetri en það eru álíka mörg keppnislið og tekið hafa þátt í þessari viðureign á undanförnum árum. Dregið verður í fyrstu umferð keppninnar í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 þann 17.des. að loknum fréttum kl 16, en fyrstu tvær umferðir keppninnar fara fram á Rás 2 í janúarmánuði á nýju ári.

Fulltrúi nemenda í stýrihópi keppninnar og annar tveggja spurningahöfunda munu sjá um dráttinn eins og verið hefur undanfarin ár.