Verkmenntaskóli Austurlands stefnir á að bjóða upp á námskeið í smáskipanámi - vélstjórn undir 15m á vorönn 2024 ef næg þátttaka fæst. Náminu er skipt upp á tvær annir.
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja öðlast atvinnuskírteini til að starfa sem vélstjóri <750 kW á smáskipum allt að 15 m lengd í strandsiglingum (með að hámarki 12 farþegum og takmörkun á farsviði).
Námskeiðið er að mestu í fjarnámi samkvæmt nýrri námskrá en til að ljúka því þarf að mæta í verklegar lotur í VA og er skyldumæting er í lotur. Nemendur munu þurfa mæta í verklegar lotur sem verða auglýstar þegar fjöldi nemenda og skipulag lotna liggja fyrir.
Námskeiðið samsvarar 15 eininga námi í framhaldsskóla. Því má gera ráð fyrir að um 270-360 klst fari í námið samkvæmt viðmiði fyrir framhaldsskólanemendur. Þar af eru rúmlega 20 klst (3 dagar) í verklegri þjálfun og prófi í viðhaldi, umhirðu, bilanaleit, viðgerðum og keyrslu vélbúnaðar í skipum.
Inntökuskilyrði miðast við að nemendur hafi lokið grunnskólaprófi og séu a.m.k. 16. ára þegar þeir hefja nám. Ekki er þó hægt að sækja um skírteini hjá Samgöngustofu fyrr en 18 ára.
Frekari upplýsingar um námið má finna hér.
Hægt er að sækja um með því að smella hér.
Námskeiðsgjald: 260.000 kr. (Námskeiðsgjöld eru óafturkræf)
Verkmenntaskóli Austurlands áskilur sér rétt til þess að aflýsa námskeiðinu ef þátttaka er dræm.