Fab Lab námskeið

Staðsetning
Fab Lab Austurland
Verkkennsluhús Verkmenntaskóla Austurlands (sambyggt íþróttahúsinu)
Gengið inn um stiga á suðurhlið hússins

Námskeiðsgjald
24.000.-
Efniskostnaður er ekki innifalinn en það er undir þátttakendum komið hversu mikill hann er.
Ath. Mörg stéttarfélög endurgreiða námskeiðskostnað fyrir félagsmenn

Hvenær?
Miðvikudaga kl. 17:00-21:00
28/1 – 4/2 – 11/2 – 18/2

Skráning og upplýsingar:
Lilja Guðný Jóhannesdóttir
lilja@austurbru.is – s. 477-1285

Viðfangsefni námskeiðsins
Kynning á Fab Lab Austurland. Kennd undirstöðuatriði í teikniforritinu Inkscape
(með Inkscape er hægt að teikna fyrir vinylskera, laserskera og stóra fræsarann) og notkun vinylskera og laserskera.
Þátttakendur þurfa að mæta með fartölvur1 og mikilvægt er að hafa mús meðferðis.
Hlaðið forritinu Inkscape inn í tölvurnar fyrirfram2 en það má sækja endurgjaldslaust af slóðinni: http://inkscape.org/download/?lang=en
1