Fundur fyrir forsjáraðila nýnema

Okkur langar að bjóða forsjáraðilum á kynningarfund um eitt og annað sem við kemur skólastarfinu miðvikudaginn 28.ágúst kl. 17-18, í stofu 1.

Á fundinum verður m.a. farið yfir skólasóknarreglur, veikindatilkynningar, vinnustofukerfið, nemendaþjónustu, jöfnunarstyrk, hlutverk forvarnafulltrúa, heimasíðu, Innu, félagslíf, erlent samstarf og hlutverk og þjónustu náms- og starfsráðgjafa..

Mikilvægt er að frá hverjum nýnema komi að minnsta kosti einn forsjáraðili.

Gott er að forsjáraðilar verði búnir að skoða Innu og kennsluvefinn. Forráðamenn eru með sér aðgang að Innu en nota aðgang nemendanna að kennsluvefnum. Á heimasíðu skólans má finna upplýsingar um allt sem tengist tölvumálum.

Ef einhver eiga um langan veg að fara og sjá sér alls ekki fært að mæta verður fundurinn sendur út á youtube rás skólans. Í boði verður að senda inn spurningar. Hlekkur á útsendinguna verður sendur í tölvupósti á fundardegi.