Góður er grauturinn

VA er heilsueflandi framhaldsskóli en í því verkefni er höfuðáhersla lögð á fjögur verkefni sem eru hreyfing, næring, geðrækt og lífstíll.

Næringarhópurinn bauð í morgun nemendum og starfsmönnum upp á hafragraut í löngu frímínútunum – til að minna á að morgunmaturinn er mikilvægasta máltíð dagsins.