Listastyrkir til VA

Sparisjóður Norðfjarðar veitti listaakademíu (LIA) VA veglegan peningastyrk nýverið. Skólinn þakkar kærlega fyrir það. Leikfélag skólans, Djúpið og LIA hafa á síðasta skólaári og áður hlotið veglega styrki sem einnig eru margs þakkarverðir og ekki síður sá mikli skilningur á starfsemi skólans sem að baki liggur. Eftirtöldum aðilum og öðrum sem styrkt hafa listastarfsemi í skólanum þökkum við af heilum hug. SÚN, SVN, Egill rauði, Eskja, Alcoa Fjarðaál, Menningarráð Austurlands, Fjarðabyggð, Íslandsbanki og Landsbankinn.

Verkmenntaskóli Austurlands mun áfram leitast við að leggja sitt af mörkum til menningarlífs í byggðarlaginu bæði í formi listviðburða og á annan hátt. Þá er gott að eiga hauk í horni.