Milljarður rís 19.febrúar

Milljarður rís 2015
Milljarður rís 2015

Milljarður rís

Allir eru hjartanlega velkomnir í Íþróttahúsið stundvíslega kl. 12:15 á föstudaginn til að taka þátt í dansbyltingu!

Byltingin er haldin um allan heim og með samtakamætti lætur heimsbyggðin til sín taka. Yfir milljarður karlmanna, kvenna og barna kemur saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem  allir fá að njóta sömu tækifæra. Okkar trú er sú að það sem sameinar okkur er sterkara en það sem sundrar okkur. 

Til þess að nemendur og starfsfólk skólans geti sótt þennan viðburð þá lýkur kennslustundum kl.11:40 og hefjast aftur kl.12:50. Matur í mötuneyti verður tilbúinn kl.11:40. VA og Nesskóli eru í samstarfi varðandi þennan viðburð.