Milljarður rís upp

Nemendur Verkmenntaskóla Austurlands tóku þátt í átakinu Milljarður rís upp: Upprætum ofbeldi gegn konum og stúlkum!

Nemendur og starfsfólk skólans hittust í matsal skólans og dönsuðu í hádeginu. Leikfélagið Djúpið stýrði fyrst dansi en þau eru að setja upp söngleikinn Grís.  Við tók svo frjáls dans. Það var mikið stuð í matssalnum og nemendur stungu upp á að gera þetta reglulega.

Átaki sem þessu er ætlað að opna augu sem flestra fyrir þeim raunveruleika að þriðja hver kona verður fyrir ofbeldi á lífsleiðinni vegna kyns síns. Einn milljarður kvenna og stúlkna hefur þegar upplifað kynbundið ofbeldi og þess vegna var markmiðið að fá einn milljarð karla, kvenna, stelpna og stráka til að rísa upp og hrista heiminn með dansi. Þrátt fyrir að Ísland sé ekki stór hluti af einum milljarði þá lagði VA sitt að mörkum við að hrista heiminn með dansi.  Á sama tíma dönsuðu höfuðborgarbúar í Hörpu í sama tilgangi.

Þátttakendur í dansinum líta á dansinn sem ígildi undirskriftar við eftirfarandi yfirlýsingu:

                Við NEITUM að búa í heimi þar sem:

-          nauðgunarmenning er normið

-          þar sem konum er kennt að hafa varann á sér þegar þær eru einar úti

-          þar sem ungar stúlkur eru þvingaðar og seldar í hjónabönd

-          þar sem konur eru útskúfaðar úr samfélaginu ef brotið er á þeim kynferðislega

-          þar sem konur eru myrtar ef þær eru taldar hafa kastað rýrð á heiður fjölskyldunnar

-          þar sem konum er refsað fyrir að kæra kynferðisbrot

-          þar sem refsileysi ríkir þegar konur eru niðurlægðar í netheimum

Hádegisstund dagsins var einstaklega skemmtilegur og stór hópur nemenda og starfsfólks tók þátt. Þetta var frábært tækifæri þar sem vitundavakning var sett fram á jákvæðan hátt og nemendur og starfsfólk skemmtu sér saman.