Myndir frá skólafundi

Frá skólafundi í morgun
Frá skólafundi í morgun

Myndir frá skólafundinum í morgun eru komnar í myndasafnið hér á síðunni http://www.va.is/is/skolatorg/myndasafn/skolafundur-21.1.14 .

Hér fyrir neðan má sjá bréf skólameistara sem dreift var á fundinum.

 

Skólafundur 21.janúar 2014

Á þessari önn verða skólasóknarreglur VA endurskoðaðar. Liður í því er að gefa öllum nemendum og starfsmönnum tækifæri til þess að koma með tillögur að breytingum og er þessi skólafundur vettvangurinn til þess. Fundargerð skólafundar fer svo til skólaráðs þar sem áfram verður unnið að endurskoðun. Einnig munu reglurnar vera teknar til umræðu á skólanefndarfundi, kennarafundi, nemendaráðsfundi og hjá foreldrafélaginu. Gert er ráð fyrir því að breytingar á skólasóknarreglum verði teknar til endanlegrar afgreiðslu á skólafundi 22.maí.

Skólameistari