Þriðjudaginn 04. desember hefst námsmatstímabil í Verkmenntaskóla Austurlands. Námsmatstímabilið er tvær vikur og er síðasta prófið föstudaginn 14. desember en sjúkrapróf eru mánudaginn 17. desember. Öll próf hefjast kl. 10:00.
Af þessum sökum breytist brottfarartíminn á rútunni. Rútan fer frá Reyðarfirði kl. 09:00 og svo aftur til baka frá Verkmenntaskólanum kl. 12:15.
Nemendur geta séð próftöfluna sína í Innu en einnig er hægt að sjá próftöfluna í heild sinni á heimasíðu VA
Tímatafla á rútuferðum á námsmatstímabili VA
9:00 Reyðarfjörður (Orkuskálinn)
9:02 Reyðarfjörður (Molinn)
9:03 Reyðarfjörður (Austurvegur/Barkur)
9:15 Eskifjörður (Sundlaug)
9:17 Eskifjörður (Þjónustumiðstöð/Shell)
9:19 Eskifjörður(Strandgata/Steinholt)
9:20 Eskifjörður(Valhöll)
9:42 Neskaupstaður (VA)