Nemendur VA á Íslandsmóti iðn- og verkgreina

Dagana 16. – 18. mars stendur yfir Íslandsmót iðn- og verkgreina. Mótið fer fram í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal.

VA á nokkra fulltrúa á mótinu en Helgi Vigfús Valgeirsson, Kristín Jóna Skúladóttir og Jóna María Aradóttir eru þar fyrir hönd skólans ásamt kennurum sínum, þeim Hafliða og Eyþóri. Á mótinu keppir Helgi við aðra nemendur í rafvirkjun, Kristín Jóna etur kappi við nemendur í húsasmíði.

Fyrir þá sem hafa áhuga þá er hægt að fylgjast með þeim á Snapchat nemendafélagsins: ni-va