Nýnemar í VA

Nýnemar í VA vorið 2014
Nýnemar í VA vorið 2014

Í morgun var fyrsta kennslustund á tölvunámskeiði fyrir byrjendur. Heldur voru þessir nemendur í eldri kantinum miðað við nýnema enda um að ræða félagsmenn í Félagi eldri borgara á Norðfirði. Einn nemandinn, Stefán Þorleifsson (97 ára), hafði á orði að það væri gaman að setjast aftur á skólabekk eftir 80 ár.