Nýr skólameistari í VA

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Elvar Jónsson í embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands til fimm ára.
Elvar hefur BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og hefur auk þess lokið kennsluréttindanámi á meistarastigi frá Háskólanum á Akureyri. Hann hefur starfað við kennslu frá 2002 á grunn- og framhaldsskólastigi og verið kennari við Verkmenntaskóla Austurlands síðan 2010. Starfsfólk VA óskar Elvari hjartanlega til hamingju með starfið.