Nýtt nemendaráð

Á þriðjudaginn hélt nýtt nemendaráð (stjórn NÍVA) sinn fyrsta fund. Fyrir fundinn fór ráðið á kennarafund og kynnti sig fyrir kennurum skólans og sungu fyrir þá skólasönginn. Nýtt nemendaráð skipa eftirtaldir: Sindri Már Smárason formaður, Steina Gunnarsdóttir varaformaður, Sigrún Hilmarsdóttir gjaldkeri, Anna Margrét Arnarsdóttir ritari, Margrét Vilborg Steinsdóttir skemmtanastjóri, Lilja Tekla Jóhannsdóttir, skemmtanastjóri, Andrea Magnúsdóttir hringjari, Þórunn Egilsdóttir hringjari, Tristan Theódórsson tæknitröll, Arnar Snær Gunnarsson prentari og Bylgja Háfdanardóttir tengiliður nýnema.