Opnar fyrir umsóknir um jöfnunarstyrk þann 1. september

Opnað verður fyrir umsóknir um jöfnunarstyrk fyrir námsárið 2024-2025 þann 1. september n.k. og eru nemendur hvattir til að sækja um strax fyrir báðar annir námsársins.

Umsóknarfrestur haustannar er til og með 15. október n.k. og vorannar til og með 15. febrúar n.k.

Frekari upplýsingar um jöfnunarstyrk má finna á síðu Menntasjóðs námsmanna hér

Hægt er að sækja um jöfnunarstyrkinn með því að skrá sig inn hér