Stjórn NIVA , nemendafélags VA, hefur sett sér siðareglur. Stjórnin hefur í gegnum tíðina reynt að tryggja að félagslíf
skólans henti sem flestum og að skólabragur VA einkennist af virðingu og vináttu. Nú hefur stjórnin tekið stærra skref í þá
átt og sett sér skriflegar siðareglur sem hún mun fylgja. Siðareglurnar eru eftirfarandi:
Stjórn NIVA leggur sig fram við að:
- tryggja að félagslíf skólans einkennist af virðingu, umhyggju, jafnrétti og lýðræði
- skipuleggja ekki viðburði sem upphefja félagslega stéttaskiptingu meðal nemenda
- fagna nýnemum í skólanum á jákvæðan hátt fyrir alla með uppbroti á skóladegi, hátíð og gleðistund
- gæta að jöfnu kynjahlutfalli í stjórn nemendafélags og ráðum og nefndum á þeirra vegum
- auglýsingar innan skólans, á Instagram, Snapchat, Facebook og aðrar á þeirra vegum ýti ekki undir staðalmyndir um hlutverk kynjanna,
útlitsdýrkun eða fordóma af neinu tagi
- hafa að leiðarljósi að ráða ekki skemmtikrafta sem gætu valdið einstaklingum innan skólans vanlíðan eða stuðlað að meiri
fordómum eða minni virðingu fyrir ólíkum hópum í samfélaginu
- vera fyrirmynd hvað varðar mannvirðingu, jafnrétti og jákvæð samskipti