Skólabyrjun

 Nokkur áríðandi atriði fyrir nemendur í byrjun vorannar 2017:

  • Miðvikudaginn 4. janúar 2017 verður kennt eftir hraðtöflu (sjá hér fyrir neðan).
  • Nemendur eru beðnir um að kynna sér hraðtöfluna vel með tilliti til þeirra áfanga sem þeir eru skráðir í.
  • Kennt verður frá kl. 08:30 – 11:50 og rútan fer frá skólanum kl. 12:00
  • Matur í mötuneytinu byrjar fimmtudaginn 5. jan. og nemendur þurfa að staðfesta skráninguna frá haustönninni.
  • Nemendur þurfa líka að staðfesta skráningu fyrir rútukortin.
  • Heimavistin opnar kl 17:00 þriðjudaginn 3. jan. Það verður kvöldverður í boði.