Skólasýning á GRÍS kl. 15:00 á fimmtudag - ATH. breyttan sýningartíma

Skólasýning á GRÍS verður kl. 15:00 á fimmtudag 28. febrúar (en ekki kl. 16:00 eins og auglýst var). Miðapantanir í síma 4771620. Aðrar sýningar eru: Föstudag 1. mars kl. 20:00 og kl 00:00 (miðnætursýning) og laugardag 2. mars kl. 20:00 (síðasta sýning). Sýningin hefur verið geysivel sótt og góður rómur gerður að frammistöðu leikara og annarra flytjenda.