Smáskipanámskeið í Verkmenntaskóla Austurlands

Kenndar verða 5 – 6 helgar. Fyrsta kennsluhelgin er 25. – 26. október og síðasta kennsluhelgin er 29. – 30. nóvember.

 Smáskipanám kemur í stað þess sem áður var nefnt 30rl réttindanám (pungapróf) og miðast atvinnuskírteinin nú við lengd skipa í stað brúttórúmlestatölu áður.

Réttindin miðast skv. því við skip 12 metrar og styttri að skráningarlengd, m.v. að hafa lokið 12 mánaða siglingatíma skv. reglugerð nr. 393/2008.

Á námskeiðinu verða kennd bókleg atriði sem krafist er samkvæmt námskrá um skipstjórnarnám: siglingafræði, siglingareglur og sjóréttur, siglingatæki og fjarskipti, vélfræði, stöðugleiki og skipstjórn, veðurfræði og umhverfisvernd.

Að loknu námskeiði þurfa nemendur að taka áfangann SLY101 (slysavarnir) sem  slysavarnarfélagið Landsbjörg býður reglulega uppá (ekki innifalið í námskeiðsgjaldi) . Þá þarf að sækja um atvinnuskírteini hjá Samgöngustofu.

Kennari á námskeiðinu verður Magni Kristjánsson (8614747).

Verð 120.000.

Öll kennslugögn verða fáanleg í verslun Fjarðasports í Neskaupstað.

Síðasti skráningardagur er 20. október 2014. Skráning eða nánari upplýsingar í síma 4771620 eða á va@va.is.