Stuðningskennsla í maí

Skólinn mun bjóða nemendum upp á stuðning á lokasprettinum.  Miðvikudaginn 7. maí verður skólinn opinn til kl. 19:00.  Kennarar skólans verða með viðveru eftir að skóla lýkur þ.e. frá 16:30 – 19:00.  Skólinn verður einnig opinn til kl. 19:00 alla virka daga á meðan á prófum stendur og verða kennarar skólans þá einnig til taks fyrir nemendur til stuðnings við próflesturinn.  Ekki eru allir kennarar með viðveru á sama tíma en nemendur geta leitað nánari upplýsinga hjá kennurum og hjá ritara.  Einnig verður viðvera kennara auglýst á upplýsingatöflum og upplýsingaskjám skólans.