Svipmyndir frá Tæknidegi fjölskyldunnar 2014

Laugardaginn 8.nóvember var haldinn Tæknidagur fjölskyldunnar í húsnæði Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Þetta er í annað sinn sem Tæknidagurinn er haldinn en með honum er ætlunin að vekja með skemmtilegum hætti athygli á tækni og vísindum í okkar nánasta umhverfi. Fyrir deginum stóðu Austurbrú og Verkmenntaskólinn en rúmlega tuttugu fyrirtæki, skólar og stofnanir tóku þátt. Að sögn aðstandenda Tæknidagsins voru fimm hundruð og þrjátíu gestir sem heimsóttu skólann.

fab

FabLab Austurland var formlega opnað á Tæknidegi fjölskyldunnar. F.v. Jóna Árný
Þórðardóttir framkvæmdastjóri Austurbrúar, Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra,
Elvar Jónsson skólameistari VA og Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Vilhelm Anton Jónsson, Vísinda-Villi, fær að vita allt um FabLab Austurland.

fab

Stóri hluti gesta á Tæknidegi fjölskyldunnar eru börn og unglingar.

fab

Börnin fengu ekki bara að sjá tæknina virka heldur fengu þau líka að gera sínar eigin tilraunir.

fab

Líffræðingurinn Þórður Júlíusson, eða Doddi á Skorrastað eins og flestir þekkja hann, kryfur ref.