Tæknidagur fjölskyldunnar verður haldinn í Verkmenntaskóla Austurlands laugardaginn 16. mars frá 13:00 - 17:00. Austurbrú, VA og Háskólinn
í Reykjavík skipuleggja daginn. Fjölmargt tæknilegt verður í boði af svæðinu og góðir gestir koma í heimsókn. Það
helsta sem boðið er upp á er:
- Einfaldar eldhústilraunir
- Fjórgengisvél
- Fyrsta austfirska.... –Nokkur tímamót í austfirskri iðn- og tæknisögu í boði VA og skjala- og myndasafns
Norðfjarðar.
- Galileo sjónauki
- Google er svo miklu meira en bara Google – Örnámskeið í umsjón Þóru Gylfadóttur,
upplýsingafræðings hjá HR kl. 14:30 – 15:30 í stofu 1. Þátttakendur mæti með fartölvu.
- Hátækni í áliðnaði – Alcoa Fjarðaál
- Hvert fór Pjetur? – Trackwell sýnir notkun staðsetningarkerfa.
- Hvísldiskar - Multitask, VA og Austurbrú
- Krufning á ref – Líffræðinemar kryfja ref.
- Varmadælur – ódýr húshitun ?
- Leystu málið - Leikskólinn Sólvellir
- Litabreytingar á efnum – einfaldar títranir – Opið hús hjá Matís
- Ljósaflækja og frumstæður hátalari
- Mátið miðsóknarkraftinn – í boði Vélsmiðjunnar Hamars
- Náttúran í nærmynd - Aldursgreining á hreindýrum, víðsjárskoðun á pöddum o.fl. hjá
Náttúrustofu Austurlands.
- Nemendafyrirlestrar – Nemendur í lífeðlisfræði við Verkmenntaskóla Austurlands flytja fyrirlestra af
ýmsu tagi kl. 13:30 – 14:30 í stofu 1
- Nýsköpun í Grunnskólum Fjarðabyggðar
- Prófið rafsuðu og logsuðu – í umsjón verkgreinakennara VA.
- Púlsmælingar - Nemendur íþróttaakademíu VA
- Sjókall - Kynning á leitartækni fyrir týnda sjómenn.
- Smávirkjun á vatnskrana
- Sýning á smíðisgripum – G. Skúla og VA sýna valda smíðisgripi
- Tæknilegó - Grunnskólinn á Fáskrúðsfirði
- Tæknispuni – Leikfélagið Djúpið
- Tæknitöfrar í fiskveiðum og vinnslu - Síldarvinnslan
- Vöktunarbúnaður við æti – Refaveiðimenn sýna hvernig refur er vaktaður við agn.
- Vökvatækni
- Þrautakubbar
- Þrívíddarlíkön af höfuðkúpum - Sigrún Björk Sævarsdóttir kynnir lokaverkefni sitt í
heilbrigðisverkfræði við HR.
- Þróun í hönnun - Mannvit
- „Öruggt hættusvæði“ - Securitas í samstarfi við Slökkvilið Fjarðabyggðar býður gestum
að upplifa þjófavörn, brunavörn og reykköfun