Tæknidagur fjölskyldunnar 2015:

Spennandi tækni, vísindi og sköpun

Tæknidagur fjölskyldunnar verður haldinn í Verkmenntaskóla Austurlands laugardaginn 10. október. Dagurinn er sem fyrr tileinkaður tækni, vísindum, sköpun og þróun á Austurlandi og miðast dagskráin við alla aldurshópa.

Tæknidagarnir í fyrra og hittiðfyrra hafa tekist með eindæmum vel en áætlaður fjöldi gesta í fyrra var um sjö hundruð manns. Þetta er í þriðja sinn sem Austurbrú ses. og Verkmenntaskóli Austurlands taka höndum saman og skipuleggja daginn en markmiðið með Tæknidegi fjölskyldunnar er sem fyrr að vekja athygli á fjölbreyttum og spennandi viðfangsefnum tækni, verkmennta og vísinda  um leið og öll fjölskyldan skemmtir sér saman.

Tæknidagur fjölskyldunnar 2015 verður með svipuðu sniði og áður. Fjöldi fyrirtækja á Austurlandi sýnir allskyns tæknilausnir, gestir fá að kynnast landmótun í þrívídd í mögnuðum „sandkassa“, reykköfun og brunavörnum, rafknúnum kappakstursbílum frá HR og HÍ, rafmagnseinhjólum og Segway-hjólum auk þess sem gestir geta lært grunnatriði í málmsuðu. Fab Lab Austurland verður að sjálfsögðu opið í tilefni dagsins en það var einmitt formlega tekið í notkun á Tæknideginum í fyrra. Þá munu félagar í Sprengjugengi Háskóla Íslands mæta með Sprengju-Kötu í broddi fylkingar en sýningar Sprengjugengisins hafa ætíð vakið lukku hjá ungum sem öldnum. Einnig verður boðið upp á skoðunarferð í nýsprengd Norðfjarðargöng.

Þetta og margt fleira verður á Tæknideginum 2015 en full dagskrá fylgir með sem viðhengi.

Tæknidagur fjölskyldunnar 2015 verður 10. október, klukkan 12:00 – 16:00. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.

Myndatexti: Þórður Júlíusson, líffræðingur, kryfur ref.  

Nánari upplýsingar um Tæknidag fjölskyldunnar veita Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir, áfangastjóri VA, s. 477 1620 og Lilja Guðný Jóhannesdóttir hjá Austurbrú í síma 848 3607.