Upphaf vorannar

Frá Tæknidegi 2013. Hann verður aftur 29.mars 2014
Frá Tæknidegi 2013. Hann verður aftur 29.mars 2014

Skóli hefst þriðjudaginn 7.janúar. Þennan fyrsta skóladag  verður kennt samkvæmt hraðtöflu. Taflan kemur inn á heimasíðuna á mánudaginn en nemendur geta einnig nálgast hana hjá ritara. Rútuferðir eru samkvæmt áætlun Fjarðabyggðar. Opnað verður fyrir stundatöflur  í Innu á mánudagsmorguninn. Heimavistin opnar á mánudaginn og verða skólameistari og heimavistarstjóri með fund með heimavistarbúum í kvöldmatartímanum kl.18 -19. Mötuneytið opnar á miðvikudaginn fyrir aðra en heimavistarbúa. Mikilvægt er að nemendur skrái sig í mat hjá ritara á þriðjudaginn. Endilega hafið samband við skrifstofu skólans ef frekari upplýsinga er þörf.