Upphaf vorannar

Skóli hefst þriðjudaginn 6.janúar. Þennan fyrsta skóladag  verður kennt samkvæmt hraðtöflu. Taflan kemur inn á heimasíðuna á mánudaginn en nemendur geta einnig nálgast hana hjá ritara. Rútuferðir eru samkvæmt áætlun Fjarðabyggðar. Opnað verður fyrir stundatöflur  í Innu á mánudagsmorguninn. Heimavistin opnar á mánudaginn og verða skólameistari og heimavistarstjóri með fund með heimavistarbúum í kvöldmatartímanum kl.18 -19. Mötuneytið opnar á miðvikudaginn fyrir aðra en heimavistarbúa. Mikilvægt er að nemendur skrái sig í mat hjá ritara á þriðjudaginn. Endilega hafið samband við skrifstofu skólans ef frekari upplýsinga er þörf.