VA hlýtur góðan styrk frá Félagi íslenskra rafvirkja

Á myndinni má sjá Maríönnu Rögnu ásamt Hildi Dröfn deildastjóra rafiðngreina og Birgi Jónsson aðstoð…
Á myndinni má sjá Maríönnu Rögnu ásamt Hildi Dröfn deildastjóra rafiðngreina og Birgi Jónsson aðstoðarskólameistara

Í dag fengum við góða heimsókn frá Maríönnu Rögnu Guðnadóttur fyrir hönd Félags íslenskra rafvirkja (FÍR) sem afhenti rafdeild VA styrk að upphæð 800.000 kr sem nýttur var í kaup á mælitækjum fyrir rafdeildina. Þessi styrkur kemur sér einstaklega vel og gerir aðstöðu okkar nemenda í rafdeildinni enn betri. 

Við þökkum FÍR kærlega fyrir styrkinn.