VA tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna

Í dag, á alþjóðadegi kennara, var tilkynnt að VA er tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2024 í flokki iðn- og verkmenntunar. Tilnefningin er fyrir að efna til samstarfs við grunnskólana í Fjarðabyggð um framboð á fjölbreyttum verklegum valgreinum. 

Verðlaunin verða veitt á Bessastöðum þann 5. nóvember og sýnt verður frá athöfninni degi síðar í sjónvarpinu.

Hér má sjá umfjöllun um tilnefningu VA ásamt fleiri tilnefningum