Verðlaun fyrir góðan árangur á sveinsprófi

Marteinn Eiríksson fær afhent verðlaun frá Guðmundi Ævari Guðmundssyni
fyrir góðan árangur á verkle…
Marteinn Eiríksson fær afhent verðlaun frá Guðmundi Ævari Guðmundssyni
fyrir góðan árangur á verklega hluta sveinsprófs í rafvirkjun í júní 2024

Fyrrum nemandi okkar í dreifnáminu í rafvirkjun, Marteinn Eiríksson gerði það gott á sveinsprófinu í júní. Nú í september hlaut hann verðlaun vegna góðs árangurs á verklegum hluta prófsins við hátíðlega athöfn á Hilton Reykjavík Nordica þar sem 100 nemendur úr rafiðngreinum fengu sveinsbréfin sín afhent og óskum við Marteini innilega til hamingju með frammistöðuna og árangurinn en hann útskrifaðist einmitt úr Rafiðnaðardeild VA í maí s.l.