VERKNÁMSKYNNING HLUTI AF VINNUSKÓLA FJARÐABYGGÐAR

Verknámsvika hefur mælst vel fyrir sem hluti af Vinnuskóla Fjarðabyggðar. Með nýjum samstarfssamningi Fjarðabyggðar og Verkmenntaskóla Austurlands er þessi fjölbreytta verknámskynning nú orðin viðtekinn hluti af Vinnuskóla Fjarðarbyggðar.
Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri og Elvar Jónsson, skólameistari undirrituðu samninginn á Tæknidegi fjölskyldunnar sem fram fór sl. laugardag í Verkmenntaskóla Austurlands.

Sjá nánar http://www.fjardabyggd.is/nanar/verknamskynning-hluti-af-vinnuskola-fjardabyggdar