Vinnustofudagar

Dagana 11. og 12. desember  verða vinnustofudagar í Verkmenntaskóla Austurlands (sjá dagskrá í viðhengi). Þar verða opnar vinnustofur þar sem nemendur geta fengið aðstoð frá viðkomandi kennara varðandi verkefnaskil og/eða prófundirbúning ef það á við. Einnig verða einhver munnleg eða verkleg próf og ritgerðir afhentar.

Þessa daga er ekki mætingaskylda, nema ef kennari hefur fastsett tíma með nemanda. Nemendur eru þó hvattir til þess að nýta vinnustofudagana vel og nýta sér þá aðstoð sem er í boði.

Dagskrá vinnustofudaga í viðhengi