Fréttir

Vinnustofudagar og próf

Dagana 9. og 10. maí eru vinnustofudagar. Frjáls mæting er í vinnustofurnar. Próf hefjast svo miðvikudaginn 11. maí samkvæmt próftöflu (sjáið nánar með að smella á fyrirsögn).
Lesa meira

Lovestar

Leikfélagið Djúpið frumsýnir leikritið Lovestar laugardaginn 30.apríl kl.20:00 í Egilsbúð. Önnur sýning verður þriðjudaginn 3. maí kl. 20:00.
Lesa meira

Söngkeppni framhaldsskóla á Norður- og Austurlandi

Síðastliðinn laugardag fór fram Söngkeppni framhaldsskóla á Norður- og Austurlandi, en hún var haldin í Hofi á Akureyri. Vinningshafi kvöldsins kom frá VMA og heitir Elísa Ýrr, í öðru sæti varð Jón Tumi úr MA og í þriðja sæti varð Elvar Baldvinsson frá Framhaldsskólanum á Laugum. Tvö atriði kepptu fyrir hönd VA og stóðu keppendur sig frábærlega og skiluðu atriðum sínum mjög vel. Skólinn er afar stoltur af keppendum sínum þeim: Kristínu Joy, Mörtu, Óskari og Braga og óskar þeim innilega til hamingju með frammistöðuna. Einnig var gaman að sjá hve duglegir aðrir nemendur skólans voru að hvetja keppendurna til dáða.
Lesa meira

Skólafundur

Í síðustu viku fór fram skólafundur. Til umræðu voru vinnustofur og umgengni. Sjá myndir í myndasafni með að smella á fyrirsögn.
Lesa meira

Námskeið í vefforitun

Námskeið í vefforitun í samstarfi við Verkmenntaskóla Austurlands og FABLAB verður haldið dagana 19. - 21. apríl. Námskeiðið fer fram í FABLAB frá 18:00 - 21:00 Námskeiðsgjöld eru 10.000 kr. Athugið að námskeiðið verður haldið með fyrirvara um næga þáttöku. Lágmarksþáttaka eru 12 skráningar. Skráning og greiðsla fer fram á vefslóðinni: http://koder.is/seminar/verkmenntaskoli-austurlands-vefforritun/ Á námskeiðinu munu þátttakendur læra: HTML grunnur CSS grunnur Javascript grunnur Hönnun á einföldu vefappi Tímasetningar: 19. apríl // 18:00 - 21:00 20. apríl // 18:00 - 21:00 21. apríl // 18:00 - 21:00 Þátttakendur þurfa ekki að eiga eigin tölvu til að taka þátt. Við komum með vinnustöðvar fyrir alla.
Lesa meira

Skólafundur

Mánudaginn 11. apríl verður skólafundur. Fundurinn verður settur í stofu 1 kl. 10:55 þar sem skólameistari fer yfir fyrirkomulag skólafundar, umræðuefni o.fl.. Að þessu sinni eru umræðuefnin tvö. Í fyrsta lagi umgengni og í öðru lagi vinnustofur. Allir nemendur og starfsfólk VA eru boðaðir á fundinn. Gert er ráð fyrir því að fundurinn standi í um klukkustund og fellur öll kennsla niður á meðan.
Lesa meira

Vettvangsferð til Reyðarfjarðar

Nemendur og kennarar á starfbrautinni skelltu sér í vettvangsferð til Reyðarfjarðar 4.mars síðastliðinn. Ferðin hófst hjá Slökkvuliði Fjarðabyggðar en þar tók Guðmundur Helgi Sigfússon á móti hópnum og fræddi um starf slökkvuliðsmanna auk þess sem hann sagði sögur úr starfinu og sýndi aðstöðuna. Sérstaklega sló í gegn hjá hópnum að fá að renna sér niður súluna og skoða bílana. Að þessu loknu lá leiðin á Íslenska stríðsárasafnið en þar tók Pétur Sörensson á móti hópnum og sýndi safnið. Hann kunni ótal góðar sögur af stríðsárunum og vöktu margir gripir á safninu áhuga gestanna. Ferðin endaði á Tærgesen í pizzuveislu og þannig lauk skemmtilegum og fræðandi degi.
Lesa meira

Geðræktarmálþingið ,,Hvað segirðu gott?“

Geðræktarmálþingið ,,Hvað segirðu gott?“ var haldið í Nesskóla, Neskaupstað síðastliðna helgi. Málþingið skiptist í tvo hluta, á föstudagskvöldið fyrir ungmenni á aldrinum 16 – 20 ára en öllum opið á laugardeginum. Það voru forvarnarteymi VA, foreldrafélög VA og Nesskóla og starfsfólk fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar sem stóðu fyrir málþinginu. Á málþinginu komu fram sterkar persónur með reynslusögur, erindi og gjörninga. Þar var m.a. annars nemandi sem fjallaði um baráttu sína við þunglyndi og aðstandandi sem deildi reynslu í kjölfar sjálfsvígs. Þá flutti Salóme Rut erindi um lífsánægju og starfsumhverfi sjómanna og Petra Lind Sigurðardóttir hélt erindi um líkamsímynd og átraskanir. Einnig framkvæmdu nemendur frá Listaakdemíu VA gjörninga þar sem þeir túlkuðu á magnaðan hátt þær tilfinningar sem þeir hafa glímt við s.s. einelti og kvíða. Það var síðan Logi Geisson fyrrum landsliðsmaður í handknattleik sem endaði málþingið á erindi um sjálfstraust og markmiðssetningu. Vel tókst til og má áætla að um 300 manns hafi sótt málþingið. Almennt mátti heyra að gestir hafi verið mjög ánægðir með hvernig til tókst. Geðræktarmálþingið ,,Hvað segirðu gott?“ var haldið í Nesskóla, Neskaupstað síðastliðna helgi. Málþingið skiptist í tvo hluta, á föstudagskvöldið fyrir ungmenni á aldrinum 16 – 20 ára en öllum opið á laugardeginum. Það voru forvarnarteymi VA, foreldrafélög VA og Nesskóla og starfsfólk fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar sem stóðu fyrir málþinginu. Á málþinginu komu fram sterkar persónur með reynslusögur, erindi og gjörninga. Þar var m.a. annars nemandi sem fjallaði um baráttu sína við þunglyndi og aðstandandi sem deildi reynslu í kjölfar sjálfsvígs. Þá flutti Salóme Rut erindi um lífsánægju og starfsumhverfi sjómanna og Petra Lind Sigurðardóttir hélt erindi um líkamsímynd og átraskanir. Einnig framkvæmdu nemendur frá Listaakdemíu VA gjörninga þar sem þeir túlkuðu á magnaðan hátt þær tilfinningar sem þeir hafa glímt við s.s. einelti og kvíða. Það var síðan Logi Geisson fyrrum landsliðsmaður í handknattleik sem endaði málþingið á erindi um sjálfstraust og markmiðssetningu. Vel tókst til og má áætla að um 300 manns hafi sótt málþingið. Almennt mátti heyra að gestir hafi verið mjög ánægðir með hvernig til tókst.
Lesa meira

Geðræktardagar - myndir frá föstudeginum

Dagana 9. – 11. mars voru geðræktardagar í VA. Myndir frá 11. mars eru komnar í myndasafnið.
Lesa meira

Geðræktardagar - myndir frá fimmtudeginum

Dagana 9. – 11. mars eru geðræktardagar í VA. Myndir frá öðrum degi eru komnar í myndasafnið. http://www.va.is/is/skolatorg/myndasafn/gedraektardagar-2016-fimmtudagur
Lesa meira