Fréttir

Geðræktardagar

Dagana 9. – 11. mars verða geðræktardagar í VA. Þá mun öll hefðbundin kennsla falla niður og boðið verður upp á ýmiskonar vinnustofur sem tengjast á einn eða annan hátt geðrækt en Verkmenntaskóli Austurlands er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli. Þeir nemendur sem taka þátt alla geðræktardagana (fyrir og eftir hádegi) fá eina f-einingu.
Lesa meira

Miðannarmatsdagar

Dagana 7. og 8. mars eru miðannarmatsdagar í Verkmenntaskóla Austurlands. Þessa daga verður einungis kennsla í þremur áföngum (VST204, TIH10A og SMÍ204 (1+2) og prófað verður úr nokkrum öðrum áföngum.
Lesa meira

Milljaður rís

Fjöldi fólks kom saman í íþróttahúsinu í Neskaupstað í hádeginu í dag og steig trylltan dans til að mótmæla ofbeldi gegn konum. Tilefnið er átak á vegum UN Women sem kallað hefur verið „Milljaður rís“. Það er Verkmenntaskóli Austurlands sem hefur frumkvæðið af viðburðinum í samstarfi við Nesskóla og allir bæjarbúar voru hvattir til þátttöku. Þetta er í þriðja sinn sem VA tekur þátt í þessu átaki og hefur það vaxið frá því að nemendur og kennarar dönsuðu saman í matsal heimavistarinnar í risapartý í íþróttahúsinu. Ágúst Ingi Ágústsson kennari við VA flutti þrumuræðu þar sem hann hvatti viðstadda til hrista heiminn til umhugsunar og verka til að stöðva ofbeldi gegn konum. Í ár er átakið tileinkað konum á flótta. Um þessar mundir eru rúmlega milljón konur heimilislausir flóttamenn sem flúið hafa átökin í Sýrlandi. Þessar konur eru oft varnarlausar á flótta sínum og því miður er til vont fólk í heiminum sem nýtir sér varnarleysi þeirra. Konur og stúlkur á flótta eiga á stöðugri hættu á að vera beittar ofbeldi, kynferðislegri misnotkun og mansali. Þetta kemur öllum við og við verðum að finna leið til að stöðva ofbeldið. Það var kannski ekki milljarður sem reis upp og dansaði í Neskaupstað í dag en við erum klárlega hluti af milljarði og leggjum okkar lóð á þessar vogarskálar.
Lesa meira

Milljarður rís 19.febrúar

Allir eru hjartanlega velkomnir í Íþróttahúsið stundvíslega kl. 12:15 á föstudaginn til að taka þátt í dansbyltingu! Byltingin er haldin um allan heim og með samtakamætti lætur heimsbyggðin til sín taka. Yfir milljarður karlmanna, kvenna og barna kemur saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem allir fá að njóta sömu tækifæra. Okkar trú er sú að það sem sameinar okkur er sterkara en það sem sundrar okkur. Til þess að nemendur og starfsfólk skólans geti sótt þennan viðburð þá lýkur kennslustundum kl.11:40 og hefjast aftur kl.12:50. Matur í mötuneyti verður tilbúinn kl.11:40. VA og Nesskóli eru í samstarfi varðandi þennan viðburð.
Lesa meira

Nord Universitet

Fimmtudaginn 18. febrúar kl. 12:30 verður kynning á háskólanámi í margmiðlunartækni og tölvuleikjahönnun við Nord Universitet í Steinkjer í Noregi. Kynningin er opin öllum þeim sem hafa áhuga á þessu námi.
Lesa meira

Öskudagurinn

Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur í skólanum eins og undanfarin ár. Þegar að nemendur og starfsmenn mættu í skólann í morgun þá beið þeirra ansi óvæntur og skemmtilegur glaðningur. Stjórn nemendafélagsins hafði útbúið nammipoka með fallegum og hlýjum skilaboð. Nemendur mættu margir hverjir í öskudagsbúning og auðvitað var kötturinn sleginn úr tunnunni.
Lesa meira

Sáttmáli um eflingu vinnustaðanáms

160 fyr­ir­tæki hafa skrifað undir vinnustaðasáttmála. Smellið á fyrirsögnina og fræðist meira um þessa eflingu vinnustaðanáms.
Lesa meira

Handbók heimilanna

Smellið á fyrirsögnina og svo á slóðina og kynnið ykkur Handbók heimilanna en þar er að finna ýmsar upplýsingar um skólastarfið.
Lesa meira

Auglýsing frá Listaakademíunni

Spennandi dagskrá framundan hjá Listaakademíunni. Smellið á fyrirsögnina og svo á myndina til að skoða auglýsinguna.
Lesa meira

VA mætir Borgarholtsskóla

Gettu betur-lið skólans hefur leik gegn Borgarholtsskóla þann 13. janúar n.k. kl. 19.30. Fyrstu viðureignirnar í Gettu betur fara fram á Rás 2. Keppnislið Verkmenntaskóla Austurlands hóf æfingar fyrir nokkru síðan og eru keppendur fullir tilhlökkunnar. Liðið í ár er skipað þeim Mörtu Guðlaugu Svavarsdóttur, Sigurði Ingva Gunnþórssyni og Þorvaldi Marteini Jónssyni. Varamenn eru þau María Rún Karlsdóttir og Jökull Logi Sigurbjarnarson.
Lesa meira