Fréttir

Skólasetning og fyrsti skóladagur

Skólasetning verður mánudaginn 25. ágúst kl. 08:30. Skólameistari heldur stutt ávarp og setur skólann. Skólasetningin verður undir berum himni (við suðurhlið skólans). Að lokinni skólasetningu hitta nemendur umsjónarkennara sína. Frá kl. 10:00 – 14:00 verður kennt eftir hraðtöflu sem umsjónarkennarar dreifa en einnig verður hægt að nálgast hana hjá ritara. Skólinn býður öllum nemendum og starfsfólki upp á súpu í hádeginu í mötuneyti skólans á heimavistinni. Á þriðjudaginn verður skólahald samkvæmt stundatöflu annarinnar. Rútuferðir eru eftirfarandi frá og með 25. ágúst: Frá Reyðarfirði kl. 07:35 (Byko) Frá Eskifirði kl. 07:50 (Sundlaug) Frá Norðfirði kl. 14:11 og 16:25 (VA)
Lesa meira

Stundatöflur tilbúnar

Stundatöflur nemenda eru tilbúnar og aðgengilegar að Innu. Eldri nemendur nota sama aðgang og á síðasta skólaári. Nýnemar fæddir 1998 nota aðganginn að menntagátt. Ef hann virkar ekki eða finnst ekki þá er hægt að panta nýjan aðgang á heimasíðu Innu. Eldri nýnemar eru beðnir um að senda Viðari kerfisstjóra póst til að fá aðgang að Innu á netfangið vidar@va.is.
Lesa meira

Námsbækur

Námsbækur eru seldar í versluninni Tónspil, Hafnarbraut 22 í Neskaupstað. Bóklista er að finna á http://www.va.is/is/namid/bokalisti
Lesa meira

Iðnmeistaranám

Boðið verður upp á eftirtalda áfanga í iðnmeistaranámi haustið 2014 ef næg þátttaka næst: ÍSL242, ÍSL252 og STÆ243. Kennt verður í lotum og í fjarnámi. Þorbjörg áfangastjóri tekur á móti skráningu og gefur nánari upplýsingar í síma 4771620 eða í tölvupósti bobba@va.is. Síðasti skráningardagur er 22. ágúst. Getum einnig bætt við okkur nemendum á flestar brautir skólans.
Lesa meira

Getum tekið við nemendum á flestar brautir skólans

Skrifstofa skólans hefur verið opnuð eftir sumarleyfi. Getum tekið við nemendum á flestar brautir skólans en nánari upplýsingar veitir áfangastjóri í síma 4771620 eða á bobba@va.is . Einnig laus pláss á heimavist.
Lesa meira

Sumarfrí

Skrifstofa skólans verður lokuð frá 23.júní og opnar aftur þann 5.ágúst.
Lesa meira

Verknámsvika VA og vinnuskóla Fjarðabyggðar

Í dag hófst Verknámsvika VA og vinnuskóla Fjarðabyggðar. Nemendur sem voru að ljúka 9. bekk fá tækifæri til að kynnast iðnnámi í 5 daga á launum frá vinnuskólanum. Vinnan fer fram í fjórum deildum skólans, málm-, tré-, hár- og rafdeildum undir leiðsögn kennara. Er þetta í annað sinn sem Verknámsvikan er og er það von allra að þetta skemmtilega verkefni sé komið til þess að vera.
Lesa meira

Vélstjórnarbraut í Verkmenntaskóla Austurlands - vígsla glæsilegs kennslubúnaðar

Hinn 26.maí sl. var hátíðarstund í málmdeild Verkmenntaskóla Austurlands þegar nýr og fullkominn vélarúmshermir var vígður. Viðstaddir vígsluna voru starfsmenn skólans og fulltrúar þeirra fyrirtækja sem styrktu kaupin á herminum en það voru Síldarvinnslan, Samvinnufélag útgerðarmanna og Olíusamlag útvegsmanna. Hermirinn er tölvubúnaður þar sem með nákvæmum hætti er unnt að líkja eftir starfsemi véla í skipum og framkalla allskonar bilanir í vélbúnaðinum. Hermirinn mun nýtast við kennslu á vélstjórnarbraut sem mun taka til starfa við skólann í haust. Við brautina verður boðið upp á nám sem veitir réttindi til að gegna starfi yfirvélstjóra og á skipum með vélarafl 1500 kW og minna og undirvélstjóra á skipum með 3000 kW vélarafl og minna. Einnig er stefnt að því að nemendur á vélstjórnarbraut geti að námi loknu gengist undir sveinspróf í vélvirkjun. Kennslubúnaðurinn sem hér um ræðir er viðurkenndur og uppfyllir alla alþjóðlega staðla til vélstjórnarkennslu. Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar fagnar mjög tilkomu vélstjórnarbrautar við Verkmenntaskóla Austurlands. „Þessi áfangi er mjög ánægjulegur fyrir atvinnulífið á Austurlandi,“ sagði Gunnþór. „ Sterkur skóli með öflugu verknámi styður mjög við starfsemi fyrirtækja í landshlutanum. Með tilkomu þessa nýja og öfluga vélarúmshermis skapast traustur grundvöllur fyrir nám í vélstjórn í heimabyggð og það er afar þýðingarmikið. Öflugir vélstjórar eru mikilvægir atvinnulífinu hvort heldur er við keyrslu fiskiskipa eða framleiðslubúnaðar í landi. Tel ég að það gæti verið áhugavert framhald á samvinnu Verkmenntaskólans og atvinnulífsins að taka frumkvæði í því að skapa starfsþjálfunarpláss úti í atvinnulífinu fyrir nema í vélstjórn bæði um borð í fiskiskipum og í framleiðslufyrirtækjum í landi.“ Hinn 26. maí sl. var hátíðarstund í málmdeild Verkmenntaskóla Austurlands þegar nýr og fullkominn vélarúmshermir var vígður. Viðstaddir vígsluna voru starfsmenn skólans og fulltrúar þeirra fyrirtækja sem styrktu kaupin á herminum en það voru Síldarvinnslan, Samvinnufélag útgerðarmanna og Olíusamlag útvegsmanna. Hermirinn er tölvubúnaður þar sem með nákvæmum hætti er unnt að líkja eftir starfsemi véla í skipum og framkalla allskonar bilanir í vélbúnaðinum. Hermirinn mun nýtast við kennslu á vélstjórnarbraut sem mun taka til starfa við skólann í haust. Við brautina verður boðið upp á nám sem veitir réttindi til að gegna starfi yfirvélstjóra og á skipum með vélarafl 1500 kW og minna og undirvélstjóra á skipum með 3000 kW vélarafl og minna. Einnig er stefnt að því að nemendur á vélstjórnarbraut geti að námi loknu gengist undir sveinspróf í vélvirkjun. Kennslubúnaðurinn sem hér um ræðir er viðurkenndur og uppfyllir alla alþjóðlega staðla til vélstjórnarkennslu. Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar fagnar mjög tilkomu vélstjórnarbrautar við Verkmenntaskóla Austurlands. „Þessi áfangi er mjög ánægjulegur fyrir atvinnulífið á Austurlandi,“ sagði Gunnþór. „ Sterkur skóli með öflugu verknámi styður mjög við starfsemi fyrirtækja í landshlutanum. Með tilkomu þessa nýja og öfluga vélarúmshermis skapast traustur grundvöllur fyrir nám í vélstjórn í heimabyggð og það er afar þýðingarmikið. Öflugir vélstjórar eru mikilvægir atvinnulífinu hvort heldur er við keyrslu fiskiskipa eða framleiðslubúnaðar í landi. Tel ég að það gæti verið áhugavert framhald á samvinnu Verkmenntaskólans og atvinnulífsins að taka frumkvæði í því að skapa starfsþjálfunarpláss úti í atvinnulífinu fyrir nema í vélstjórn bæði um borð í fiskiskipum og í framleiðslufyrirtækjum í landi.“ Hinn 26. maí sl. var hátíðarstund í málmdeild Verkmenntaskóla Austurlands þegar nýr og fullkominn vélarúmshermir var vígður. Viðstaddir vígsluna voru starfsmenn skólans og fulltrúar þeirra fyrirtækja sem styrktu kaupin á herminum en það voru Síldarvinnslan, Samvinnufélag útgerðarmanna og Olíusamlag útvegsmanna. Hermirinn er tölvubúnaður þar sem með nákvæmum hætti er unnt að líkja eftir starfsemi véla í skipum og framkalla allskonar bilanir í vélbúnaðinum. Hermirinn mun nýtast við kennslu á vélstjórnarbraut sem mun taka til starfa við skólann í haust. Við brautina verður boðið upp á nám sem veitir réttindi til að gegna starfi yfirvélstjóra og á skipum með vélarafl 1500 kW og minna og undirvélstjóra á skipum með 3000 kW vélarafl og minna. Einnig er stefnt að því að nemendur á vélstjórnarbraut geti að námi loknu gengist undir sveinspróf í vélvirkjun. Kennslubúnaðurinn sem hér um ræðir er viðurkenndur og uppfyllir alla alþjóðlega staðla til vélstjórnarkennslu. Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar fagnar mjög tilkomu vélstjórnarbrautar við Verkmenntaskóla Austurlands. „Þessi áfangi er mjög ánægjulegur fyrir atvinnulífið á Austurlandi,“ sagði Gunnþór. „ Sterkur skóli með öflugu verknámi styður mjög við starfsemi fyrirtækja í landshlutanum. Með tilkomu þessa nýja og öfluga vélarúmshermis skapast traustur grundvöllur fyrir nám í vélstjórn í heimabyggð og það er afar þýðingarmikið. Öflugir vélstjórar eru mikilvægir atvinnulífinu hvort heldur er við keyrslu fiskiskipa eða framleiðslubúnaðar í landi. Tel ég að það gæti verið áhugavert framhald á samvinnu Verkmenntaskólans og atvinnulífsins að taka frumkvæði í því að skapa starfsþjálfunarpláss úti í atvinnulífinu fyrir nema í vélstjórn bæði um borð í fiskiskipum og í framleiðslufyrirtækjum í landi.“
Lesa meira

Skóladagatal

Skóladagatal næsta skólaárs, 2014-2015, liggur nú fyrir. Skólasetning og fyrsti kennsludagur verður 25. ágúst. Brautskráning og skólaslit verða 30.maí.
Lesa meira

Brautskráning og skólaslit

Verkmenntaskóla Austurlands var slitið við hátíðlega athöfn í 28. sinn laugardaginn 24. maí að viðstöddu fjölmenni í Kirkju- og menningamiðstöð Fjarðabyggðar. Alls brautskráðust 36 nemendur af 7 brautum. 12 brautskráðust af félagsfræðibraut, 7 af náttúrufræðibraut, 5 úr rafvikjun, 2 með iðnmeistarapróf í rafvirkjun, 6 úr húsasmíði, 2 af sjúkraliðabraut og 2 af braut fyrir leiðbeinendur í leikskólum. Veittar voru viðurkenningar til nemenda sem hafa skarað fram úr eða náð bestum árangri í einstökum greinum. Róbert Sigurbjörnssson hlaut verðlaun fyrir ágætan námsárangur í húsasmíði. Guðbjartur Freyr Gunnarson hlaut verðlaun fyrir góðan námsárangur í rafvirkjun. Bryndís Aradóttir hlaut verðlaun fyrir ágætan námsárangur í sjúkraliðagreinum. Thelma Rún Magnúsdóttir hlaut verðlaun fyrir ágætan námsárangur á námsbraut fyrir leikskólaliða. Katrín Hulda Gunnarsdóttir hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í íslensku. Sigrún Hilmarsdóttir hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í félagsfræðigreinum. Katrín Hulda Gunnarsdóttir hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í stærðfræði. Katrín Hulda Gunnarsdóttir hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í náttúrufræðigreinum. Katrín Hulda Gunnarsdóttir hlaut verðlaun frá Stjórnendafélagi Austurlands verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í raungreinum. Félagslíf í framhaldsskólum er mikilvægt, bæði fyrir nemendur og skólasamfélagið. Eftirtaldir nemendur hafa starfað dyggilega að félagslífi skólans og sýnt dugnað og ósérhlífni í þágu samnemenda sinna: Andrea Magnúsdóttir Sigrún Hilmarsdóttir Steina Gunnarsdóttir. Við skólann hefur verið starfrækt Listaakademía um nokkura ára skeið. Eins og félagslífið er mikilvægt þá er menningin ekki síður mikilvæg. Listakademían og leikfélagið Djúpið vinna náið saman og setja á hverju ári upp metnaðarfulla leiksýningu. Eftirtaldir nemendur hafa tekið þátt í tveimur eða fleiri leiksýningum og unnið ötullega í listaakademíunni. Aníta Eir Jakobsdóttir Daníel Magnús Bergmann Ásgeirsson Katrín Hulda Gunnarsdóttir Sindri Már Smárason. Að lokum var þremur nemendum veitt viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur á stúdentsprófi. Þessir nemendur eru með 9 eða hærra í meðaleinkunn. Katrín Hulda Gunnarsdóttir með meðaleinkunnina 9,62 Smári Björn Gunnarsson með meðaleinkunnina 9,42 Sigrún Hilmarsdóttir með meðaleinkunnina 9,0 Skólinn óskar öllum brautskráðum nemendum skólans innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í námi, leik og starfi í framtíðinni.
Lesa meira