Fréttir

Fræðsla um tölvufíkn og klámvæðingu

"Að éta börnin sín - hugleiðingar um byltingu" Fimmtudaginn 28. febrúar kl. 20.00 - 22.00 í sal Nesskóla ERINDI FLYTUR Guðjón H Hauksson, ráðvilltur faðir, kennari og tölvukall
Lesa meira

Skólasýning á GRÍS kl. 15:00 á fimmtudag - ATH. breyttan sýningartíma

Skólasýning á GRÍS verður kl. 15:00 á fimmtudag 28. febrúar (en ekki kl. 16:00 eins og auglýst var). Miðapantanir í síma 4771620. Aðrar sýningar eru: Föstudag 1. mars kl. 20:00 og kl 00:00 (miðnætursýning) og laugardag 2. mars kl. 20:00 (síðasta sýning). Sýningin hefur verið geysivel sótt og góður rómur gerður að frammistöðu leikara og annarra flytjenda.
Lesa meira

Miðannarmat

Á hverri önn meta kennarar námslega stöðu og ástundun nemenda í hverjum áfanga, m.a. í þeim tilgangi að veita nemendum aðhald og leiðbeiningar við námið. Miðannarmat skólans leggur grunn að lokaeinkunn hvers áfanga, en matið gildir allt að 20%. Matið byggir m.a. á prófum, verkefnaskilum, vinnubrögðum og ástundun. Miðannarmatseinkunnir eru aðgengilegar í Innu og einnig verða þær sendar foreldrum nemenda yngri en 18 ára.
Lesa meira

SUNDDAGUR - VA

ÞRIÐJUDAGINN – 26.FEB. 09:50 – 10:20. Hollur morgunverður í setustofu nemenda. Niðurskornir ávextir o.fl.. 10:40 – 11:30. Keppt í Sundbolta, Kafsundi, ormasundi, glasasundi o.fl.. Pottur á eftir. ALLIR AÐ MÆTA – SKRÁNING Á STAÐNUM -
Lesa meira

Söngleikurinn GRÍS á fjalirnar hjá Djúpinu

Söngleikurinn GRÍS verður frumsýndur í Egilsbúð föstudaginn 22. febrúar. Leikfélagið Djúpið og Leikfélag Norðfjarðar standa að sýningunni. Leikstjóri er Stefán B. Vilhelmsson og tónlistarstjóri er Þorsteinn Árnason.
Lesa meira

Milljarður rís upp

Nemendur Verkmenntaskóla Austurlands tóku þátt í átakinu Milljarður rís upp: Upprætum ofbeldi gegn konum og stúlkum! Nemendur og starfsfólk skólans hittust í matsal skólans og dönsuðu í hádeginu. Leikfélagið Djúpið stýrði fyrst dansi en þau eru að setja upp söngleikinn Grís. Við tók svo frjáls dans. Það var mikið stuð í matssalnum og nemendur stungu upp á að gera þetta reglulega. Átaki sem þessu er ætlað að opna augu sem flestra fyrir þeim raunveruleika að þriðja hver kona verður fyrir ofbeldi á lífsleiðinni vegna kyns síns. Einn milljarður kvenna og stúlkna hefur þegar upplifað kynbundið ofbeldi og þess vegna var markmiðið að fá einn milljarð karla, kvenna, stelpna og stráka til að rísa upp og hrista heiminn með dansi. Þrátt fyrir að Ísland sé ekki stór hluti af einum milljarði þá lagði VA sitt að mörkum við að hrista heiminn með dansi. Á sama tíma dönsuðu höfuðborgarbúar í Hörpu í sama tilgangi.
Lesa meira

Verknámsvika VA og Vinnuskóla Fjarðabyggðar

Verkmenntaskóli Austurlands (VA) og Vinnuskóli Fjarðabyggðar hafa efnt til samvinnuverkefnis sem gefur nemendum Vinnuskólans kost á að kynna sér iðnnám í VA í eina viku á launum í byrjun júní. Verkefnið er ætlað nemendum í Fjarðabyggð sem hefja nám í 10. bekk að hausti. Með því að nemendur vinni verkefni á verkstæðum skólans má ætla að þeir fá betri kynningu á iðnnámi. Þar með verði þeir líklegri til að mennta sig til starfa sem henta t.d. í sjávar-, iðn- og tæknifyrirtækjum.
Lesa meira

Fáðu JÁ

Miðvikudaginn 30. janúar kl. 14:05 verður stuttmyndin Fáðu JÁ sýnd í skólanum. Mynd þessi er liður í því að efla varnir gegn kynferðislegri misnotkun og misneytingu á börnum. Markmið myndarinnar er einkum að skýra mörkin milli kynlífs og ofbeldis, vega upp á móti áhrifum kláms og klámvæðingar, brjóta ranghugmyndir á bak aftur og innræta sjálfsvirðingu í nánum samskiptum.
Lesa meira

Ófærð

Oddskarð er ófært sem stendur og beðið með mokstur. Nemendur eru beðnir um að fylgjast með hér á síðunni eftir nánari fréttum.
Lesa meira

Skólafundur þriðjudaginn 22. janúar.

Þriðjudaginn 22. janúar verður skólafundur í VA. Fundartími: 9:15 – 11:30 Þátttakendur á fundinum: Allir nemendur og allir starfsmenn VA
Lesa meira